Semi Pendant Brass er glæsilegt og tímalaust hangandi ljós, hannað af Claus Bonderup og Torsten Thorup árið 1968 fyrir danska hönnunarmerkið GUBI.
Skermurinn beinir birtunni niður á við og veitir þægilega lýsingu yfir borðstofuborð, eldhúseyjur eða önnur svæði þar sem falleg og vönduð lýsing fær að njóta sín. Hlýlegur brass-liturinn gefur ljósinu glæsilegt yfirbragð og fellur einstaklega vel að bæði nútímalegum og klassískum innréttingum.